Heilabollur, heilastappa........

Síðustu tvær færslur hafa verið afar þjóðlegar að mínu mati. Sviðnar og soðnar kindalappir, blóðgrautur með rjóma, heilastappa og heilabollur eru dæmi um það sem um hefur verið rætt. Bíddu, ég ætla að fara að æla....

Ok komin aftur. jamm, hef átt erfitt með að sofna sökum hugsana um þetta allt saman. Já ég veit, full dramatísk en ég get alveg sagt ykkur það að í vikunni átti ég actually erfitt með að sofna af því að ég var að hugsa um hvernig það væri að borða blóðgraut(áður en ég vissi hvernig hann væri búinn til og hvernig hann væri á litinn). Ég veit, ég er kjúklingur.

Veðrið. Hver hefur ekki talað um veðrið þessa vikuna? Ég hélt að gluggarnir ætluðu að koma inn með körmunum og öllu þarna á fimmtudaginn svo ég flutti mig um herbergi til að geta sofið. Hlynur minn fór í útkall, bjarga lífum og allt það þið vitið, dæla vatni og sonna.

Á föstudeginum(í dag) átti að vera æðislega brjálað veður, við biðum og biðum og biðum og biðum eftir brjálaða veðrinu en það kom eiginlega ekki neitt. Bara rok eiginlega og rigning. Rafmagnið fór jú í klukkutíma í vinnunni í dag en ekkert merkilegra en það. Miðað við spána bjóst ég við að fara fljúgandi heim(og ég er ekki V. Beckham). Pffffft, þetta var og er ekkert veður! Allavega ekki hér.

Veðrið á að vera skárra á morgun, fínt. Við erum nefnilega að fara á jólahlaðborð með Trésmiðjunni(þar sem Hlynur vinnur). Krúsin er staðurinn og er það  öruggt að við eigum eftir að skemmta okkur vel með liðinu.

Jæja, hver lumar á uppskrift af heilabollum??

 


Blóðgrautur....BLÓÐgrautur....uppskrift, nammmmmmm

Í tilefni af síðustu færslu og kommentum við hana fannst mér tilvalið að birta hér uppskrift af blóðgraut. Já. hmmm. ehhhh. blóóóóóóððððð..... veit ekki alveg, ég hélt að blóðgrautur væri eiginlega bara blóð með smá hveiti. En hann er víst meira brúnn á litinn og frekar lítið blóð í honum. Kannski, BARA KANNSKI myndi ég smakka hann miðað við þær upplýsingar! En eftirfarandi uppskrift hefur eiginlega of mikið af blóði fyrir minn smekkSick
NjótiðWink 
blóð
250 gr. Smörl. (hmmm.....á þetta að vera smjör?)
380 gr. Hveiti
1 3/4 l. Mjólk
3/4 l. Blóð
1 tsk. Salt


Bakað upp með snarpheitri mjólkinni, en köldu blóðinu hrært út í á milli, soðið 10-15 mín. Hrært vel í á meðan. Best er að nota blóð úr ungum kálfi. Borðað með kanil og sykri með rjóma eða rjómablandi. Þetta er mjög gott.

(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
 ahhh blóð.....

Sviðnar kindalappir í matinn í kvöld, nammmm....?

Í kvöld vorum við í mat hjá Kollu og Nonna í Hjarðadal. Einu sinni ári sem sagt erum við boðin í mat, ásamt hinum systkinum Hlyns og mökum, ásamt tengdaforeldrum mínum Didda og Dúnnu. (Hlynur minn er bróðir Nonna). Jámm,  við erum jú oftar boðin í mat yfir árið en þetta er mjög spes. Fyrir mig allavega.....Í boði eru kindalappir... sviðnar og soðnar kindalappir. Kindalappir með klaufum og alles. Soðnar í haunk svo skinnið og sinarnar losni utanaf við snertinguna eina. Ójá, smjattað og kjammsað á seigum sinunum og skinnið svo mikið soðið að rétt þarf að snerta til að það flosni í sundur. Allt í kringum mig voru þau að smjatta á þessu góðgæti, fitugir fingur og kartöflumúsin út á kinnar. Ég fékk mér súpu. Kjötsúpu.

Mikið vildi ég að ég væri nógu það kjörkuð að geta smakkað. Skammast mín hálfpartinn fyrir að sitja hjá við svona alíslenskt matarborð.

Kannski næst.....


Steinunn, þú rúlar!!!!!!

Mikið vildi ég hafa skrifað þetta:

"Ef ég sagði eitthvað vitlaust þá biðst ég vægðar og vona að mér sé fyrirgefið”, segir hvítur, miðaldra, millistéttar karlmaðurfeministaherkona.jpg í góðri stöðu í þjóðfélaginu. Hann er einn þeirra sem telur femínista stjórna allri umræðu í samfélaginu. Hann er einn þeirra fjölmörgu sem telur pólitíska rétthugsun hafa keyrt úr hófi fram. Hann telur sig varla geta opnað munninn án þess að vera skotinn niður af femínista í herklæðnaði sem skýtur úr jákvæðri mismununarbyssu, varpar kynjafræðisprengjum, notar strategíska jafnréttisáætlun í sókn sinni og verst með jafnréttislögum. Hin úthugsaða “operation heimsyfirráð” sem femínistar hafa planað síðan á seventís er greinilega á fúllsving.

Femínistar virðast samkvæmt umræðunni vera búnir að banna hitt og þetta og svo er fólk voða pirrað yfir að málfrelsi þeirra sé heft (af femínistum náttúrulega) þegar sleggjudómar þeirra um hópa fólks eru gagnrýndir. Ef það er málfrelsi að fullyrða að útlendingar séu nauðgarar upp til hópa, af hverju er það þá árás femínista á karlmenn að benda á það að yfir 90% naugðara eru karlmenn? Hið fyrrnefnda er vanalega rökstutt með tilfinningu og hið seinna með rannsóknum. Og hvað er það annað en alvarleg aðför að tjáningarfrelsi kvenna að hóta þeim konum kynferðislegu ofbeldi sem tjá sig opinskátt um jafnréttismál á opinberum vettvangi. Við höfum dæmi um þetta frá því nú íreversed-roles.jpg vikunni á bloggi Gillzeneggers og á fleiri bloggum frá því í kringum klámráðstefnumálið hið mikla. Kenna kjellingunum smá lexíu, þær eru orðnar aaaaðeins of valdamiklar.

Orðnar of valdamiklar? Klassískt dæmi, viðsnúin hlutverk: Ef konur væru 70% þingmanna, karlmaður hefði aldrei verið bankastjóri, forsætisráðherra né biskup. Allir bankastjórar og seðlabankastjórar væru konur, enginn karl væri kvótakóngur, karlar fengju greitt minna en konur fyrir sömu störf og þau störf sem titluð væru karlastörf væru lítt metin og illa borguð. Karlar væru innan við 8% stjórnarmanna í 100 stærstu fyrirtækjum landsins. Það sem karlar gerðu væri lítið fréttnæmt. Fréttatímar væru yfirfullir af því sem konur eru að gera af því að það væri merkilegt en það sem karlar gerðu væru í ansi mörgum tilfellum kallað “fótboltafréttir” og ekki vert að minnast á. Helstu birtingamyndir karla væru að birtast hálfnaktir, sólbrúnir og stæltir í kynferðislegum stellingum og það sem konum fyndist skemmtilegast að pæla í varðandi karla væri hversu stórt typpi þeir væru með. Karlar væru seldir svo hundruðum þúsundum skipti á milli landa í þeim tilgangi að neyða þá í vændi. Ef að karlar síðan svo mikið sem voguðu sér að setja út á þetta ástand þá væri þeim bent á að jafnrétti væri löngu náð og sannast sagna væru þeir frekir vælukjóar sem hefðu of hátt.

Það er mjög merkilegt að komin sé upp sú staða að internetið er fullt af “forréttindafemínistum” og hvítum, karlkyns,reversed-roles2.jpg millistéttar, gagnkynhneigðum píslarvottum þess að hafa fæðst inn í heim þar sem þeim sé “bannað” að tjá sig vegna þess að þeir tilheyri ekki minnihlutahóp. Hvernig gerðist það að femínismi er allt í einu tengdur við forréttindi og jakkafatakarl við píslarvotta? Ef femínistar hefðu raunverulega þau völd sem þeim eru eignuð í þessari orðræðu þá liti samfélagið svolítið öðruvísi út. Að gefnu tilefni vil ég benda á að staða kvenna í samfélaginu verður aldrei leiðrétt nema staða karla sé líka leiðrétt. Til dæmis tel ég það raunverulegt baráttumál fyrir karla að fá rými til að ræða tilfinningar sínar án þess að hæðst sé að þeim. Þegar stelpustrákur er ekki lengur niðrandi orð er takmarkinu náð. En þegar málefni karla eru rædd á þann hátt að kvennabarátta síðustu áratuga hafi gert drengjum þessa lands ljótan grikk þá erum við á villigötum. Að lokum: “Operation heimsyfirráð” er auðvitað algjört bull og hefur aldrei verið til, femínistar eru ekki gjarnir á að klæða sig í hermannabúning og væri þá til of mikils mælst ef hætt væri að stilla jafnréttisbaráttu upp sem skotgrafarhernaði milli karla og kvenna?"

 

Þetta skrifaði Steinunn Gyðu og Guðjónsdóttir. Frábær penni!


Útilegumaðurinn minn sæti með skeggið

Er hann ekki myndarlegur! Hlynur minn var sem sagt að leika Harald, útilegumann í Skugga-Sveini. Síðasta sýning var núna í gærkvöldi. Hann stóð sig eins og hetja þessi elska!!!!

Útilegumaðurinn minn 

Frá því við byrjuðum saman hefur hann suðað um að fá að safna skeggi en ég alltaf sett mig upp á móti því og hótað engum kossum framar. Jæja, þegar honum var boðið hlutverk Haralds var hann fljótur að segja já þegar hann vissi að hann þyrfti að safna skeggi:) Nema hvað, eftir nokkra daga var hann að fara úr límingunum af löngun til að raka sigLoL

Í gærkvöldi kom hann því hlaupandi heim eftir að frumsýningu lauk, rauk upp á bað, sturtaði sig og hófst svo handa við hinn langþráða rakstur. Þegar hann kom niður fannst mér hann vera hálfbarnalegur í framan, svona skegglaus og glansandi. En kossarnir verða líklega fleiri hér eftir en undanfarnar vikurWink


Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Des. 2007

S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband