Í þar síðustu viku fengum við gríðarlega mikilvægan styrk frá félagsmálaráðuneytinu. Í apríl s.l. sóttum við um styrk vegna húsaleigu í heilt ár, að upphæð 700 þús. Skiluðum við inn góðri skilagrein með umsókninni og biðum spenntar eftir svari.
Loksins, eftir langa mæðu, barst svarið. Við fáum styrk að upphæð 600 þús kr! Þetta er okkur afar mikilvægt þar sem áframhaldandi leiga stóð og féll með svarinu frá þeim. Við hefðum ekki haft efni á húsnæðinu ef við hefðum ekki fengið styrkinn, a.m.k. ekki lengi.
Við Sólstafakonur þökkur kærlega fyrir stuðinginn og vonum að við getum á komandi árum haldið áfram að leita til ráðuneytisins eftir stuðningi.
Áfram Sólstafir Vestfjarða!!! (systursamtök Stígamóta fyrir þá sem ekki vita. )
Bloggar | 29.9.2007 | 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Um síðustu helgi, 21.-23. september, sat ég leiðbeinandanámskeið Stígamóta fyrir sjálfshjálparhópa. Námskeiðið var haldið að Sólheimum í Grímsnesi og fengum við heilt hús út af fyrir okkur til þess að gista og borða í.
Nítján konur voru á námskeiðinu fyrir utan Þórunni eldabusku og Dóru sem kom á sunnudeginum með smá myndþerapíutíma. Þórunn sá til þess að við værum saddar og sælar allan daginn og vel það og stóð hún sig eins og hetja. Morgunverðarhlaðborð, grjónagrautur og slátur í hádeginu, grautarlummur í kaffinu, grilluð læri í kvöldmat og súkkulaðikaka í eftirrétt. Namm, við vorum saddar langt fram á mánudag held ég.
Við mættum galvaskar á föstudagskvöldinu og komum okkur fyrir í notalegum herbergjum Veghúss. Klukkan 20 hófst námskeiðið formlega með kynningu á hugmyndafræði Stígamóta og enduðum við það kvöld á stuttum kynningum á okkur sjálfum og var áherslan á styrkinn og þá sigurgöngu sem við höfum fetað. Hvað gerði það að verkum að við gátum sótt okkar innri kraft og náð að blómstra.
Á laugardeginum byrjuðum við kl 10 í Sesseljuhúsi. Þá hófust verkefni dagsins. Allar áttum við taka þátt í þremur hópverkefnum. Sem sagt, farið var í 9 málefni alls og seinnipartur dagsins fór í að kynna niðurstöður. Öll þessi umræðuefni auk annarra eru tekin fyrir í sjálfhjálparhópunum sjálfum, hver og einn fundur snýst um eitt efni, eins og t.d. unglinginn.
Um kvöldið var svo borðað dýrindis læri a la Þórunn og því lauk með skemmtilegum leikjum svo hlátrasköllin bárust eflaust niður í dalinn og víðar.
Sunnudagurinn hófst einnig kl 10 í Sesseljuhúsi þar sem Dóra dýrmæta var mætt og tók hún okkur í smá myndþerapíu. Deginum lauk snemma með slökun kl 13 og þar með var námskeiðinu slitið.
Við kvöddum þennan fagra stað með smá depurð yfir því að þetta væri búið en jafnframt mikilli gleði því við höldum heim með eldmóð og baráttuvilja í hjarta, tilbúnar til þess að takast á við hlutverk okkar sem leiðbeinenda.
Sjálfhjálparhópar, stuttur úrdráttur af heimasíðu Stígamóta :
Hóparnir hittast í 15 - 17 skipti. Á hverjum fundi tökum við eitt umræðuefni fyrir og tekur þetta ferli um það bil þrjá mánuði og er alger skyldumæting.
Í hverjum hópi eru 5-6 konur auk leiðbeinanda sem sjálf hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og hefur sjálf unnið í sínum málum. Leiðbeinandinn er alltaf einn af hópnum og fer í gegnum sína reynslu líka. Við leggjum áherslu á að þetta er ekki meðferð heldur sjálfshjálp og að því leyti verðum við okkar eigin sérfræðingar, því að engin þekkir betur en við sjálfar hvernig okkur líður eftir þessa reynslu.
Í fyrsta tíma er farið í sögu hverrar konu fyrir sig og er ótrúlegt hvað fljótt er að myndast traust innan hópsins. Svo er farið í barnið og þá unglinginn. Þarna er oftast komin sá grunnur sem við vinnum með.
Eftir þetta er komið að því að skoða afleiðingar kynferðisofbeldisins. En til að gefa einhverja mynd af þessari vinnu, þá tölum við um allflestar tilfinningar sem tengjast sjálfsvinnu og sjálfsskoðun, og þá fer af stað ferli til að aftengja afleiðingar ofbeldisins og að sjá sjálfan sig í réttu ljósi og er hópavinnan trúlega besta aðferðin til að takast á við það.
Allir sem fara í gegnum þessa hópa finna fyrir breytingum, mismiklum, því allar erum við sérstakar og vinnum hver á sínum hraða eins og gerist í allri sjálfsvinnu.
Það má því segja að hver sá sem velur þessa leið, finnur og skilur meira
í sjálfum sér og við það myndast sjálfsvirðingin sem allir þarfnast til þess að öðlast hamingju og sjálfsánægju til að geta tekist jákvætt á í lífsbaráttunni.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í sjálfhjálparhópum hér á Ísafirði sem hefjast innan skammts eru hvattir til þess að hafa samband í síma 846 8846. Allir fara í einn tíma með leiðbeinanda og í framhaldi af því er ákveðið hvort viðkomandi fari í hóp.
Bloggar | 29.9.2007 | 21:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þessi undurfagra snót er eins ár í dag. Fyrir ári síðan var ég að vakna um þetta leyti eftir annasaman en yndislega nótt á fæðingadeildinni með Árelíu litlu systur og Gumma hennar. Ég hafði það hlutverk að vera á ÖLLUM vélunum, þ.e. mynda og upptökuvélum. Stóð mig með stakri prýði held ég. Árelía stóð sig eins og sönn hetja á glaðlofti og rumpaði þessu af á rúmum 2 klst. Geri aðrir betur! Í heiminn var komin Íris Júlía Guðmundsdóttir, verðandi alheimsforseti. Hún var pínupons, rétt 13 merkur og alveg eins og pabbi sinn. ljóshærð með blá augu. Gummi að sjálfsögðu var að rifna úr stolti yfir fallegu dömunum sínum og ég mátti hafa mig alla við að rífa litlu úr höndum hans svo ég fengi nú líka að knúsa.
Þessi stórkostlega stelpa hefur veitt mér gjörsamlega ómælda gleði. Allir hennar stríðnissvipir, tönnslurnar, sundtökin í ungbarnasundinu, "súrt"svipurinn sem þið sjáið á einni myndinni og ekki má gleyma þegar hún byrjaði að labba fyrir nokkru síðan.
Þvílík hörmung að þurfa að vera svona langt frá henni!! Hún í Rvk og ég á Ísafirði. Þó leiðinlegra fyrir stóru systur mína, nöfnu Írisar, sem býr í Danaveldi. Úff.
Elsku Íris Júlía, ég get ekki beðið eftir að koma fljúgandi til þín í fyrramálið og smella á þig stórum kossi, ef þú náðarsamlegast leyfir mér.....!!
Knús og klemm
Harpa frænka
Bloggar | 20.9.2007 | 10:02 (breytt kl. 10:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)

![]() |
Lenti næstum því á Akureyri í stað Ísafjarðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 19.9.2007 | 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jebb, ég vaknaði rétt fyrir hádegi í dag. Leist afskaplega vel á sólina sem reyndi að troða sér inn um svefnherbergisgluggann minn og ákvað að koma mér á fætur og út. Fór í sturtu, blés hárið, setti á mig andlit, fór í hvíta pilsið mitt, fínan bol og að sjálfsögðu nýju ógeðslega flottu appelsínugulu kápuna mína með kraganum flotta. Aha, geðveikt. Mér leið eins og rosa skutlu, "góðann daginn, ég ætla að fá lítinn hábít og einn latté takk" sagði ég við afgreiðslukonuna á Kaffi Edinborg. Dillaði mér svo niður í sæti og kveikti á fartölvunni. Þarna sat ég í dágóða stund, eða í rúma 2 tíma, fór svo að versla og síðan lá leiðin heim rúmlega 15.
Fjórum tímum síðar eða kl 19 var ég í eldhúsinu að ganga frá þegar ég tek LOKSINS eftir því..... ég var í öfugu pilsinu, neiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!!!!!!!! Ekki einn heldur tveir þvottamiðar stóðu út í loftið á ásaumaða undirpilsinu svo ekki var annað hægt en að taka eftir þeim. Nema ég gerði það ekki....fyrr en þarna.
Ekki nóg með það heldur náði ég næstum að kveikja í fartölvunni.... Lítið sakleysislegt sprittkerti var á borðinu hjá mér á kaffihúsinu og bráðnaði bakhlið skjásins dulítið.
Gott fólk, Harpa Oddbjörnsdóttir í hnotskurn.
Bloggar | 16.9.2007 | 21:27 (breytt 18.9.2007 kl. 12:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þennan dag árið 1999 lést mamma, þá 48 ára gömul. Ég reyni alltaf að minnast hennar á einhvern hátt á þessum degi. Hlusta á Strauss eða Júpiters, blogga um hana, hringi í pabba, rifja upp skemmtilegar og fallegar minningar eða skoða af henni myndir. Stundum allt þetta.
Valsar Strauss, Júpiters, dans og stelputími
Þegar mamma var á lífi elskaði ég gamlársdag. Geri enn, en á annan hátt. Mamma var alltaf svo glöð á gamlárskvöld. Á meðan pabbi fór á brennuna setti hún valsa Strauss á fóninn og síðan fyrstu plötu Júpiters og dansaði og dansaði á stofugólfinu. Ég horfði alltaf á hana aðdáunaraugum, hávaxin og glæsileg, svo falleg og hamingjusöm og síða pilsið eða kjóllinn þyrlaðist um fætur hennar.
Hulda Guðrún frænka rifjar þetta upp líka stundum. Gleymir því ekki þegar mamma dró hana upp í dans, gjörsamlega taktlausa manneskjuna.
Á meðan tónlistin hljómaði um húsið gerðum "við konurnar" okkur sætari og fínni, fórum í fín föt, máluðum okkur og gerðum hárið gellulegt. Stelputími.
Ég sakna þín mamma.Bloggar | 16.9.2007 | 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Bloggar | 14.9.2007 | 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mmmmmmm......aaahhhhh.... ég sit hér að kvöldi föstudags með eldspýtnailm í nösum. Jamm, ok ekki sjarmerandi við fyrstu lesningu en bíddu. Í dag fór ég í nornabúðina á Ísafirði. Heitir reyndar ekki nornabúðin heldur Orkusteinn. Búðin opnaði í vor/sumar að mig minnir og ég hef alltaf verið á leiðinni að kíkja þangað en gleymi því iðulega. Í dag hinsvegar fór ég loksins. Tarotspil, reykelsi, tónlist, bækur, krossar, höfuðkúpur, hálsmen, armbönd, kerti, kristalskúlur og þar fram eftir götunum var í boði. Ég endaði á því að kaupa "mood ring" eða hring sem breytir lit eftir því hvernig skapi maður er í. Á því augnabliki sem ég keypti hann var ég afar róleg, samkvæmt hringnum, dökkblár. Gott mál. Einnig keypti ég 3 eldspýtnabréf með ilmandi eldspýtum. Hhmmmmmm...hvað er það? Ahhhh....góð lykt! Þú kveiktir á eldspýtunni, leyfir henni að brenna niður til hálfs og leggur hana svo niður í öskubakka eða á disk og leyfir henni að brenna út. Á eftir finnur þú seiðandi ilm af sandalviði, jarðaberjum, og musk til dæmis eins og létta huggandi snertingu ásvinar sem þú saknar.
Bloggar | 14.9.2007 | 23:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Sept. 2007
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar