Styrkur frá félagsmálaráðuneyti

Í þar síðustu viku fengum við gríðarlega mikilvægan styrk frá félagsmálaráðuneytinu. Í apríl s.l. sóttum við um styrk vegna húsaleigu í heilt ár, að upphæð 700 þús. Skiluðum við inn góðri skilagrein með umsókninni og biðum spenntar eftir svari.

Loksins, eftir langa mæðu, barst svarið. Við fáum styrk að upphæð 600 þús kr! Þetta er okkur afar mikilvægt þar sem áframhaldandi leiga stóð og féll með svarinu frá þeim. Við hefðum ekki haft efni á húsnæðinu ef við hefðum ekki fengið styrkinn, a.m.k. ekki lengi.

 Við Sólstafakonur þökkur kærlega fyrir stuðinginn og vonum að við getum á komandi árum haldið áfram að leita til ráðuneytisins eftir stuðningi.

Áfram Sólstafir Vestfjarða!!! (systursamtök Stígamóta fyrir þá sem ekki vita. )


Leiðbeinandanámskeið Stígamóta

Um síðustu helgi, 21.-23. september, sat ég leiðbeinandanámskeið Stígamóta fyrir sjálfshjálparhópa. Námskeiðið var haldið að Sólheimum í Grímsnesi og fengum við heilt hús út af fyrir okkur til þess að gista og borða í.
Nítján konur voru á námskeiðinu fyrir utan Þórunni eldabusku og Dóru sem kom á sunnudeginum með smá myndþerapíutíma. Þórunn sá til þess að við værum saddar og sælar allan daginn og vel það og stóð hún sig eins og hetja. Morgunverðarhlaðborð, grjónagrautur og slátur í hádeginu, grautarlummur í kaffinu, grilluð læri í kvöldmat og súkkulaðikaka í eftirrétt. Namm, við vorum saddar langt fram á mánudag held ég. 

Við mættum galvaskar á föstudagskvöldinu og komum okkur fyrir í notalegum herbergjum Veghúss. Klukkan 20 hófst námskeiðið formlega með kynningu á hugmyndafræði Stígamóta og enduðum við það kvöld á stuttum kynningum á okkur sjálfum og var áherslan á styrkinn og þá sigurgöngu sem við höfum fetað.  Hvað gerði það að verkum að við gátum sótt okkar innri kraft og náð að blómstra.

Á laugardeginum byrjuðum við kl 10 í Sesseljuhúsi. Þá hófust verkefni dagsins. Allar áttum við taka þátt í þremur hópverkefnum. Sem sagt, farið var í 9 málefni alls og seinnipartur dagsins fór í að kynna niðurstöður. Öll þessi umræðuefni auk annarra eru tekin fyrir í sjálfhjálparhópunum sjálfum, hver og einn fundur snýst um eitt efni, eins og t.d. unglinginn.
Um kvöldið var svo borðað dýrindis læri a la Þórunn og því lauk með skemmtilegum leikjum svo hlátrasköllin bárust eflaust niður í dalinn og víðar.

Sunnudagurinn hófst einnig kl 10 í Sesseljuhúsi þar sem Dóra dýrmæta var mætt og tók hún okkur í smá myndþerapíu. Deginum lauk snemma með slökun kl 13 og þar með var námskeiðinu slitið.
Við kvöddum þennan fagra stað með smá depurð yfir því að þetta væri búið en jafnframt mikilli gleði því við höldum heim með eldmóð og baráttuvilja í hjarta, tilbúnar til þess að takast á við hlutverk okkar sem leiðbeinenda.

Sjálfhjálparhópar, stuttur úrdráttur af heimasíðu Stígamóta :


Hóparnir hittast í 15 - 17 skipti. Á hverjum fundi tökum við eitt umræðuefni fyrir og tekur þetta ferli um það bil  þrjá mánuði og er alger skyldumæting.

Í hverjum hópi eru 5-6 konur auk leiðbeinanda sem sjálf hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi og hefur sjálf unnið í sínum málum.  Leiðbeinandinn er alltaf einn af hópnum og fer í gegnum sína reynslu líka. Við leggjum áherslu á að þetta er ekki meðferð heldur sjálfshjálp og að því leyti verðum við okkar eigin sérfræðingar, því að engin þekkir betur en við sjálfar hvernig okkur líður eftir þessa reynslu.

Í fyrsta tíma er farið í sögu hverrar konu fyrir sig og er ótrúlegt  hvað fljótt er að myndast traust innan hópsins. Svo er farið í barnið og þá unglinginn. Þarna er oftast komin sá grunnur sem við vinnum með.

Eftir þetta er komið að því að skoða  afleiðingar  kynferðisofbeldisins.    En til að gefa einhverja mynd af þessari vinnu, þá tölum við um allflestar tilfinningar sem tengjast sjálfsvinnu og  sjálfsskoðun, og þá fer af stað ferli til að aftengja afleiðingar ofbeldisins og að sjá sjálfan sig í réttu ljósi og er hópavinnan trúlega besta aðferðin til að takast á við það.

Allir sem fara í gegnum þessa hópa finna fyrir breytingum, mismiklum, því allar erum við sérstakar og vinnum hver á sínum hraða eins og gerist í allri sjálfsvinnu.

Það má því segja að hver sá sem velur þessa leið, finnur og skilur meira
í sjálfum sér og við það myndast sjálfsvirðingin sem allir þarfnast til þess að öðlast hamingju og sjálfsánægju til að geta tekist jákvætt á í lífsbaráttunni.


 
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í sjálfhjálparhópum hér á Ísafirði sem hefjast innan skammts eru hvattir til þess að hafa samband í síma 846 8846. Allir fara í einn tíma með leiðbeinanda og í framhaldi af því er ákveðið hvort viðkomandi fari í hóp.


Bloggfærslur 29. september 2007

Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Maí 2025

S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • október
  • Maí
  • október
  • Maí
  • face-hooked2

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband