Hugsa mig 7000 sinnum um áður en ég fer í bikinivax eftir þessa frásögn....

Fékk þessa sérdeilis skemmtilegu sögu senda á póstinn minn...deili henni með ykkur.

 

Reynslusaga af vaxi

Ég raka venjulegast á mér lappirnar því ég er bara of nísk til að fara reglulega í vax til að ráða við þennan frumskóg á löppunum á mér. Síðan fór ég í Hagkaup um helgina og sá eitthvað rosalega sniðugt vax, auðvelt í notkun, sársaukalaust og það besta að maður á að vera laus við hárin í 4-5 vikur..... og það var á tilboði! Þannig að ég skellti mér á það.

Síðan svæfði ég börnin og fór síðan inn á bað til að byrja hreingerninguna, ætlunin var nefnilega að koma kallinum á óvart þegar hann kæmi heim úr ferðalaginu seinna um kvöldið. Ég tók vaxið upp úr kassanum, þetta var svona kaldir vaxrenningar sem átti að nudda á milli handanna til að hita áður en þeir væru settir á hárugu svæðin. Ég byrjaði að nudda renningana en sá fram á að það myndi taka alltof langan tíma og fékk því snilldarhugmynd. Ég lagði þá bara á borðið við hliðina á vaskinum, náði í hárblásarann, setti hann í botn og var nákvæmlega enga stund að hita þá.
Síðan setti ég þá á leggina á mér og....... þetta var.... heitt og alls.
ekki. sársaukalaust!

En ég viðurkenni þó að ég átti von á meiri sársauka, kona sem hefur gengist undir tvennar deyfilausar fæðingar og rúmlega 30 spor í hvort sinn, þolir nú alveg að 100+ hár séu rifin upp með rótum með einum vaxstrimli. Þannig að ég hélt áfram, kláraði lappirnar og eina rauðvínsflösku í leiðinni.

Þá fékk ég aðra brilljant hugmynd, ákvað að koma kallinum virkilega á óvart og leyfa honum að kíkja á eina sköllótta, það myndi án efa leiða til ýmissa skemmtilegra "æfinga". Þannig að ég athugaði með börnin, þau voru enn sofandi, náði mér í aðra rauðvínsflösku, hitaði vaxrenning, setti annan fótinn upp á klósettið og skellti renningnum í klofið..... og reif af. Ó MÆ GOD!!! Ó JESÚS KRISTUR!!! ÉG SÉ EKKERT, ÉG ER BLIND, ÞVÍLÍKUR SÁRSAUKI!!! Ég var blinduð af sársauka, sló niður hárblásarann og rauðvínsflöskuna áður en ég náði andanum aftur. Ég hélt ég hefði gelt sjálfa mig með því að rífa af mér hálfa píkuna! Ég þakkaði allavega fyrir að miðað við sársaukann þá gat ekki verið eitt stingandi strá eftir.

Ég leit á vaxrenninginn. FUCK! FUCK, SHIT, FUCK! Hann. var. tómur. Ekki eitt einasta hár á renningnum.... og ekki neitt vax heldur! HVAR VAR VAXIÐ??? Ég leit hægt niður, hrædd við sjónina sem beið mín..... allt vaxið af renningnum var í klofinu á mér. Ég leit til himins. WHY? Og gjörsamlega miður tók fótinn niður af klósettinu! Mistök! ÞVÍLÍK MISTÖK!
Ég gjörsamlega heyrði píkuna og rasskinnarnar límast saman!

Ég gekk um baðherbergisgólfið algjörlega miður mín og hugsaði hvað til bragðs skyldi taka. Hvernig get ég losnað við vaxið. Ég prófaði að toga það af með puttunum. Ekki góð hugmynd. Ég yrði að láta það leysast upp, bræða það á einhvern máta. Hvað bræðir vax? Mér varð litið á hárblásarann en hvarf strax frá þeirri hugmynd þar sem mig langaði ekki til að útskýra brunasárin á brunadeildinni niður á Borgarspítala. Vatn! Vatn bræðir vax.
Ég lét vatn renna í baðið, svo heitt að Saddam Hussein hefði kosið að nota það til að pynda óvini sína, ég aftur á móti dró andann djúpt, gekkst undir pyntingar sjálfviljug og settist í baðkarið.

Ég komst að nokkru sem ég hafði ekki vitað áður. Vatn bræðir ekki vax!
Neibb, 60 gráðu heitt vatn bræðir ekki vax, aftur á móti var ég nú límd föst við baðbotninn! Heilinn fór í óverdræv, hvernig gat ég bjargað mér úr þessari klípu? Eftir ýmsar tilraunir sem allar mislukkuðust, náði ég í Lady rakvélina mína og ákvað að skafa vaxið af! Ef ykkur langar til að vita hvernig það var legg ég til að þið rakið ykkur með ársgamalli vel notaðri rakvél, notið ekki vatn né nokkurs konar sápu. Þá komist þið nálægt því!

Ég var að reyna að skafa vaxið af þegar ég kom loksins auga á bjargvættinn minn. Hallelújah, Praise the Lord. Það fylgdi nefnilega með í pakkanum svona vax remover. Ég hafði bara ekki tekið eftir því fyrr. Ég flýtti mér að ná í bómull, hella slatta í og nudda yfir vaxið. ÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ! Klofið á mér brann! Það var eins og ég hefði hellt yfir það bensíni og kveikt í! En mér var sama því helvítis draslið virkaði. Því þoldi ég sársauka sem yfirgnæfði allan þann sársauka sem ég hafði upplifað við fæðingarnar og gerði mig 150% tilbúna í 10 fæðingar í viðbót.

Þegar ég var búin að hreinsa allt vaxið af skoðaði ég djásnið. Þrátt fyrir öll ósköpin hafði ekki. eitt. einasta. hár. horfið! Ekki. eitt. einasta!!!

Þegar maðurinn kom heim var ég búin að víggirða minn helming af rúminu.....

Ziggurat-screaming


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

hélt ég myndi pissa á mig af hlátri. takk fyrir þetta.

Jóna Á. Gísladóttir, 2.5.2007 kl. 12:23

2 identicon

ég held ég hafi pissað á mig!!!

Árelía (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 23:35

3 identicon

Snilld, áts

Liljan (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 00:27

4 identicon

hehe sá þetta á b2 ...en hvernig vax var þetta?:P

agnes (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 12:38

5 identicon

Geggjuð lesning á laugardegi!

Gísli Friðrik Ágústsson (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 13:49

6 identicon

Ég keypti mér svona í sumar og það sama kom fyrir mig, bara ekki á svona óheppilegum stað! Var með blátt slím-vax á löppinni í nokkra daga.. Mega pain!

Nanna (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 14:03

7 identicon

gargandi snilld, reddar manni alveg í laugardags vinnunni ! thx

jonsirokk (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 14:04

8 identicon

Þetta vax hefur verið eitthvað mikið gallað... ég vaxa mig reglulega en hef aldrei lent í öðru eins... þvílíkt vesen...

Imba (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 15:12

9 identicon

Kannski aðeins seint, en olía virkar vel í að leysa upp vax, barnaolía og jafnvel matarolía

Babba (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 16:49

10 Smámynd: Anna Lilja

hahaha áts...

Anna Lilja, 5.5.2007 kl. 17:13

11 identicon

Hrikalega fyndin frásögn

Bergþóra (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 17:17

12 Smámynd: Bragi Þór Thoroddsen

Útskýrir af hverju svona margar eru enn "Wax virgins"... einhver asnalegasta auglýsing sem ég hef augum barið í sjónvarpi.  Virkilega vel heppnuð frásögn af óförum.

vcd

Bragi Þór Thoroddsen, 5.5.2007 kl. 17:33

13 identicon

veistu, þetta er bara ein besta lýsing sem ég hef nokkurn tímann heyrt um þetta.... :P en já það er hreinn sannleikur í því að cold-wax er alls alls ekki sársaukalaust.... ég er sjálfur karlmaður um tvítugt.... ekki með sömu reynslu og þú í að unga út úr mér 50cm smábörnum og þurfa 30+ spor eftirá :P (guði sé lof) en ég raka reglulega á mér hem.... neðra svæðið... (kærustunni finnst það flottara þannig)...... og þarf að raka á mér upphandleggina..... (já ég er loðinn eins og api) og ég get hreint út sagt að cold-wax er þægilegra en venjulegt vax, hreint út sagt sársaukalaust í samanburði...... en ef þú ætlar að losa þig við hár þá mæli ég bara hreinlega með að þú notir bara venjulega 3 blaða rakvél fyrir kvenmenn..... þær eru bestar á líkamshár :P ekki nema þú hafir skegg á leggjunum :P en já velkominn í hóp vaxhatara :P

einn álíka vitlaus (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 18:41

14 identicon

Herðu elskan mín eg efst um að maður eigi að vaxa pjölluna með þessu!!!

atli tútta (IP-tala skráð) 5.5.2007 kl. 19:39

15 Smámynd: Harpa Oddbjörnsdóttir

hei folks, ég sé að flestir hafa ekki lesið fyrstu setninguna í þessari færslu þar sem ég segji að ég hafi fengið þessa frásögn senda á póstinn minn....

Ég færi aldrei að vaxa á mér píkuna, glætan:)

en sagan er skemmtileg:)

Harpa Oddbjörnsdóttir, 5.5.2007 kl. 19:48

16 identicon

Fyndin frásögn.... Svoldið misheppnuð tilraun hjá þér :P

 Ég lenti líka í frekar misheppnuðum hlut sem tengist því að fjarlægja líkamshár um daginn.....

Ég fór nývaknaður inná baðherbergi til að raka mig fyrir vinnuna, skellti froðunni framan í mig, gjörsamlega útum allt og var byrjaður að raka mig þegar kærastan kemur inn og ætlar á klósettið, í staðinn fyrir að fara á klósettið fór hún að hlæja og spurði mig hvað í andskotanum ég var að gera með HÁREIÐINGARKREMIÐ HENNAR FRAMAN Í MÉR !!!!!!

Til að gera langa sögu stutta, ég brann.

Samhryggist þér með píkuna á þér ;)

Jón... (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 09:13

17 identicon

úff ég lenti einu sinni illa í því þegar ég var að vaxa á mér rassinn, eða geitina eins og ég kalla rassinn minn. Semsagt var með vax í rassinum í tvo daga. Gat ekkert skitið. Ólýsanlegur sársauki

Freysi (IP-tala skráð) 11.5.2007 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband