Þrjú ár !

Ég og Hlynur á Vagninum

 Fyrir nákvæmlega 3 árum síðan var ég, Harpa litla á leiðinni á Jónsmessuball í fjárhúsunum í Hrauni á Ingjaldssandi. Það var laugardagur og ágætis veður að mig minnir. Fyrr um daginn hafði ég farið út að labba í góða veðrinu og endaði ég fram í Hrauni í kaffi. Þar var fjör að vanda á sólpallinum og í garðinum. Eftir smástund röltu 2 ungir menn upp á pallinn, annar þeirra var Halli sæti frá Flateyri og hinn var hár, dökkhærður og myndarlegur drengur. "Mmmmm....sætur strákur" hugsa ég. Þessir drengir voru hluti af hljómsveitinni sem átti að spila fyrir dansi um kvöldið.

 

Snemma um kvöldið var svo bálköstur á túninu þar og fólk byrjað að teyga söngvatn og syngja....of course. Þar sá ég drengnum myndarlega bregða fyrir aftur og fylgdist ég grant með honum út undan mér.

 

Jæja, svo leið á kvöldið og tími til kominn að bregða sér á ball. Ég var í mínu "fínasta pússi" fyrir fjárhúsin, svörtum íþróttabuxum og ljósbleikum bol með mynd framan á sem mamma hafði átt. Mér fannst ég vera æðisleg:) Ég mætti á dansleikinn og tók nokkur spor með Ágústu(sem hefur mjög líka sögu að segja frá þessu balli.......bara allt annar drengur, með fleiri krullur). Þar sé ég myndarlega drenginn upp á sviði spilandi á bassa. Kikn kikn kikn :) Ég fór þá að spjalla við Unu og Vigdísi sem sátu í góðu tómu á sólpallinum. Eftir smástund segi ég þegar við erum að tala eitthvað um stráka "verst að þessi dökkhærði myndarlegi er að spila......" Og á Vigdísi kemur svipur sem erfitt er að lýsa, soldið svona"ég-trúi-þessu-ekki-hvað-áttu-við-tíkin-þín!!" svipur. Einn af hljómsveitarmeðlimunum var nefnilega þáverandi kærasti hennar. "Hvaða strákur?" spyr hún. "Þessi sem er á bassanum" segji ég.Þá kemur þessi "thank-god!" svipur á hana og hún hlær, verður geðveikt spennt og kemur með langa háværa ræðu um það hvað þessi strákur sé yndislegur og skemmtilegur og ég veit ekki hvað og hvað. Svo rýkur hún allt í einu í burtu og sést ekki meir fyrr en hún rífur í mig og dregur mig á dansgólfið, upp að sviðinu þar sem við dönsum allt kvöldið. Þá hafði hún farið til hans upp á svið og sagt honum að á ballinu væri stúlka sem litist vel á piltinn. Hann bað hana vinsamlegs um að passa hana fyrir sig þar til eftir ballið.

 

Þegar ballinu lýkur er ég orðin frekar drukkin, sem er eiginlega skylda á sveitaballi, og stend fyrir utan fjárhúsin á spjalli við einhvern. Allt í einu er rifið í handlegginn á mér og ég er hálfdregin áfram af Hirti frænda(hann hafði sem sagt frétt að mér litist vel á drenginn hávaxna) og ég var gjörsamlega standsett við hlið drengsins og mín hendi sett í hans. Ég gat ekki hætt að flissa og drengurinn flissaði vandræðalega út í loftið og vissi ekkert hvað hann átti að gera. Með það sama var okkur fylgt upp í eldgamla rútu sem hljómsveitin hafði til umráða. Eftir að við höfðum setið þar í smástund þá biður Hjörtur alla í rútunni vinsamlegast um að finna sér annan svefnstað og hóaði öllu liðinu út á núllkommaeinni. Um nóttina fer fram mikið að keleríi okkar á milli. En nú kemur það fyndna við þessa sögu þar sem það rómantíska er búið :

 

Við sofnum svefni hinnar réttlátu nokkurra sentimetra hárri koju. Ég hins vegar vakna  eftir einhverjar klst og vantar svona ROSALEGA MIKIÐ AÐ PISSA. Ég renni mér hljóðlega fram úr kojunni á nærunum og brjósthaldara(nei, það gerðist ekkert meira en kelerí you dirty bastards!) og reyni af öllum mætti að opna hurðina út. Munið þetta var ELDGÖMUL rúta. ekkert svona ýta á einn takka og"pfiff, tssss" hurð opnast. Nei, það var eins og hurðinni hefði verið læst, utan frá.....

 

Ég, ALVEG að pissa í mig reyni þá að vekja drenginn með öllum tiltækum ráðum en hann virtist ekki vera meira lifandi en kojan sjálf. Í hryllingi ímyndaði ég mig míga þarna inn í rútunni, á gólfið og drengurinn myndi vakna þegar sólin færi að skína og hitinn, og lyktin..........í rútunni yrði óbærileg. Ekki gat ég látið það gerast þannig að ég opnaði PÍNULÍTINN hliðarglugga, hoppaði í skó drengsins og TRÓÐ mér út um gluggann. Rétt áður en ég var komin út þá hafði ég vit á því að rétta hendina inn og ná taki á teppi. Ég stóð sem sagt úti, bakvið fjárhúsin í Hrauni, við hliðina á eldgamalli rútu, um hánótt, í brjálaðri þoku, á nærbuxum, brjósthaldara, með teppi og í skóm sem voru 6 númerum of stórir. Og svo pissaði ég. Oh hvað það var gott!

 

En svo tók nú ekki betra við. Þegar ég var búin áttaði ég mig á því að ég gæti ekki opnað hurðina utan frá heldur!!!!!!!!!!!!!!!!

 

Að lokum neyddist ég til þess að ganga svona "klædd" yfir á Brekku, sem er næsti bær við fyrir þá sem ekki vita, yfir túnin sem voru óslegin með 1 metra hátt virkilega blautt gras. Ég hló alla leiðina. Ein.

 

Já þar hafið þið það krakkar mínir, svona kynntumst við Hlynur minn. Allt Vigdísi og Hirti að þakka!!

 

knús Harpa

p.s ÉG ELSKA ÞIG HLYNUR!!!!!!!!!!! Til hamingju með daginn!


Ég og Hlynur á Vagninum

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

HÆ hæ! Innilega til hamingju með árin þrjú! Hlakka til að sjá ykkur eftir tæplega mánuð!
kveðja og knús frá Kaliforníu,

Helen

Helen (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 06:00

2 identicon

yyyyyndisleg saga af yndislegu fólki. mikið hefði ég viljað vera mús á strá þegar þú barst a ðklöngrast þetta:)
til hamingju með daginn, megi hann verða jafn viðburðaríkur og sá fyrsti

Lísbet (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 09:44

3 identicon

til hamingju. mér finnst þetta alltaf jafn fyndin saga, dásamleg en fyndin. :)

Brynja Bjarnfjörð Magnúsdóttir (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 11:46

4 identicon

Ég var á þessu balli og vissi að þið hefðuð kynnst þarna.. fljótt fljúga sögurnar í sveitinni:) Gaman að heyra nánari lýsingar á þessu og til hamingju með árin þrjú :)

Ásta María (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 13:55

5 identicon

Þau eiga ammællí da,
þau eiga ammællí da
Þau eiga ammæll þauu Happy og Mable,
Þau eiga ammællí da

Veiiiii veiiii Til hamingju innilega með árin þrjú :)

Gummi, Árelía og Bumbulína

Gummi & Árelía (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 15:39

6 identicon

Hæ Harpa og Hlynur til hamingju með þessa endlausu ást, gvöð hvað þú ert góður penni Harpa, þetta er yndisleg saga, ég sat spennt við að lesa hana. Vona að framtíð ykkar verði jafn góð og árin þrjú.
Með kveðju frá Addý

Addý (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 16:00

7 identicon

Yndisleg saga Harpa mín. Við Hulda óskum ykkur innilega til hamingju með daginn, Harpa okkar og Hlynur.

Ísar (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 22:02

8 identicon

Yndisleg saga Harpa mín. Við Hulda óskum ykkur innilega til hamingju með daginn, Harpa okkar og Hlynur.

Ísar (IP-tala skráð) 29.6.2006 kl. 22:02

9 identicon

Já þetta var æðislegt kvöld!!! Ég gleymi því aldrei þegar ég kom á Brekku á sunnudagsmorguninn og vakti þig og svo flissuðum við allan daginn;) Til hamingju við.
Ágústa

Ágústa (IP-tala skráð) 2.7.2006 kl. 18:22

10 identicon

Þetta var algjör snilld. Innilega til hamingju með daginn

Hildur (IP-tala skráð) 4.7.2006 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband