Mig hefur lengi langað í þennan skóla en aldrei þorað að láta mig dreyma því þetta er dýrt nám. Grunnnámskeiðið er 295 þús kr og tekur 8 vikur. Ef ég ætti peningana væri svo sem ekki mikið mál að fara þar sem ég myndi annaðhvort taka mér launalaust frí í þessar vikur eða reyna að vinna tímabundið hjá sýslumanni í Rvk jafnvel.
En peningarnir eru ekki til, laaaaaaaaaaaaaaaaaang í frá. Ég get ekki tekið lán fyrir þessu og ekki eigum við þetta inn á bankabók.... Við höfum látið hvarla að okkur að selja bílinn en við verðum að vera með bíl. Að auki stoppar greiðsluþjónustan okkur þar sem ég get ekki verið launalaus í 2 mánuði. En kannski eftir 2-3 ár, þ.e ef við verðum ekki komin með barn og kannski greitt niður eitthvað af skuldunum.
Ég ætla samt að láta mig dreyma því hvað væri lífið án þess? Þangað til að ég get farið í skóla þá ætla ég að æfa mig og æfa og allir eru velkomnir í heimsókn svo ég geti æft mig. Ekki alltaf jafn gaman að farða sjálfan sig.... Ég er smám saman að sanka að mér vörum og hefur Elma yndislega verið dugleg að hjálpa mér við það :)
Jæja gott fólk, haldið áfram að láta ykkur dreyma því þá hafið þið eitthvað að stefna að:)
knús Harpa
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Júní 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
draumar eru í það minnsta ókeypis og hugurinn er frjáls. En yfirleitt er það þannig að það sem þú þráir mest er nær en maður heldur. Hlutir gerast fyrirvaralaust. Áður en þú veist af.... Gaf mér tíma að skoða loksins myndir úr brúðkaupinu og vá hvað þetta hefur verið æðislegt og fallegt. Hef nú bara einu sinni komið þarna en fannst það þá æði og ekkert var skreytt. Söng með ömmu og fyllti hana líka. við munum öll eftir þessari ferð ;)
Brynja (IP-tala skráð) 30.7.2006 kl. 18:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.