Þessi undurfagra snót er eins ár í dag. Fyrir ári síðan var ég að vakna um þetta leyti eftir annasaman en yndislega nótt á fæðingadeildinni með Árelíu litlu systur og Gumma hennar. Ég hafði það hlutverk að vera á ÖLLUM vélunum, þ.e. mynda og upptökuvélum. Stóð mig með stakri prýði held ég. Árelía stóð sig eins og sönn hetja á glaðlofti og rumpaði þessu af á rúmum 2 klst. Geri aðrir betur! Í heiminn var komin Íris Júlía Guðmundsdóttir, verðandi alheimsforseti. Hún var pínupons, rétt 13 merkur og alveg eins og pabbi sinn. ljóshærð með blá augu. Gummi að sjálfsögðu var að rifna úr stolti yfir fallegu dömunum sínum og ég mátti hafa mig alla við að rífa litlu úr höndum hans svo ég fengi nú líka að knúsa.
Þessi stórkostlega stelpa hefur veitt mér gjörsamlega ómælda gleði. Allir hennar stríðnissvipir, tönnslurnar, sundtökin í ungbarnasundinu, "súrt"svipurinn sem þið sjáið á einni myndinni og ekki má gleyma þegar hún byrjaði að labba fyrir nokkru síðan.
Þvílík hörmung að þurfa að vera svona langt frá henni!! Hún í Rvk og ég á Ísafirði. Þó leiðinlegra fyrir stóru systur mína, nöfnu Írisar, sem býr í Danaveldi. Úff.
Elsku Íris Júlía, ég get ekki beðið eftir að koma fljúgandi til þín í fyrramálið og smella á þig stórum kossi, ef þú náðarsamlegast leyfir mér.....!!
Knús og klemm
Harpa frænka
Flokkur: Bloggar | 20.9.2007 | 10:02 (breytt kl. 10:14) | Facebook
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Sept. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.9.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 91889
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir góða helgi skvís. Þú ert hetja :)
Falleg litla frænka þín - til lukku með hana
Dísa Dóra, 24.9.2007 kl. 21:33
Sæl Harpa, þetta er Sirrý, herbergisfélagi þinn á Sólheimum.
Það er svo fyndið að ég var að skoða þessar myndir af litlu frænku þinni áður en ég fór á Sólheima, ég man ekki í gegnum hvern, en hún er algjört krútt litla snúllan.
En takk fyrir síðast, ég er ennþá í skýjunum yfir námskeiðinu.
Kveðja Sirrý
Sigríður B Sigurðardóttir, 26.9.2007 kl. 11:46
Hæ aftur Harpa, velkominn sem bloggvinur minn, hafðu það áfram sem best.
Kveðja Sirrý
Sigríður B Sigurðardóttir, 26.9.2007 kl. 18:28
Sæl Harpa, til lukku með frænkuna ;) frábær síða hjá þér, lengi lifi bloggið hehe :D Bestu kveðjur úr Keflavík
Hanna Rúna Kristínardóttir.
Hanna Rúna stígamótastúlka (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.