Aðgát skal höfð í nærveru sálar - Kaffi Edinborg

Við Hlynur fórum á Kaffi Edinborg um hádegisbil í dag og fengum okkur hábít. Sem er nú ekki frásögum færandi nema hvað, ég var eitthvað óskaplega pirruð þegar við komum og fussaði og sveiaði yfir því að búið var að tússa yfir tvö atriði í innihaldslýsingu hábítsins á matseðlinum, steiktar kartöflur og pönnukökur. Eftir stóð: ávextir í míniskál, ein brauðsneið, ein ostsneið, smjör, egg, 3 beikonsneiðar og kaffibolli. Ég fussaði yfir þessu við greyið stelpuna eins og kelling með rúllur í hausnum og krumpugalla.

Við settumst svo niður og stelpan kom með matinn okkar bað ég hana afsökunar á því að hafa látið pirringinn bitna á henni. Tók hún það gilt með brosi sem betur fer.

Ég gat ekki annað en brosað þegar ég sá stjörnuspánna mína fyrir daginn í dag á MBL. :

"Orð þín eru áhrifaríkari en þú gerir þér grein fyrir. Með einni setningu gætir þú látið sár gróa. Mundu að aðgát skal höfð í nærveru sálar. "

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Júní 2025

S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband