Á Skjá 1 er verið að sýna gamla þætti sem heita 7th Heaven. Þættirnir eru frá árinu 1996 skilst mér(kíkti á Wikipedia.....) og enduðu núna á síðasta ári. Ég hef séð nokkra þætti þar sem þeir voru á dagskrá fljótlega eftir að vinnu lauk hjá mér á daginn. Kveikt er á sjónvarpinu nonstop þegar við erum heima. Já við erum þessi kynslóð...... Síðan var sýningartímanum breytt, bara sýnt á helgum núna.
Sem sagt, þættirnir fjalla um fjölskyldu í USA, prest, prestfrú og börnin þeirra FIMM, tveir strákar og þrjár stelpur. Húsmóðirin heimilisins er húsmóðir dauðans. Í þeirri meiningu að hún gerir ALLT á heimilinu þar sem hún er heimavinnandi, þvær, bakar, eldar, sér um garðinn, þrífur húsið og elur upp börnin(nema þegar einhver vandamál koma upp, þá kemur eiginmaðurinn til sögunnar og þau, í sameiningu, leysa vandann á mjög svo svona-á-að-ala-börn-upp hátt).
Krakkarnir ala líka hvort annað upp eftir aldri. Sá elsti, strákur, passar upp á sér yngri systur og yngri strákurinn passar upp á yngstu systurina. Allir eru að sjálfsögðu mjög réttsýnir, gáfaðir, geta nánast allt, skilja allt á endanum, eða eins og einhver sagði the all american perfect children. Þau gera þó mistök sem þau að sjálfsögðu læra af með mjög skýrum hætti. Við aðrahverja setningu sem sögð er í þættinum, ef ekki hverja setningu, hugsa ég MESSAGE!! Hver setning virðist vera hlaðin miklum boðskap....
Presturinn og prestfrúin lifa í hinu FULLKOMNA hjónabandi, ástfangin upp fyrir haus , haga sér eins og þau hafi byrjað saman fyrir mánuði. Allar samræður eru skilaboð til okkar hinna um hvernig hjónaband á að vera. Mamman er hin fullkomna kona virðist vera, getur allt og gerir allt af þvílíkum myndugleik. Að sjálfsögðu gerir presturinn ekki neitt heima við því hann er jú í fullu starfi, hann þrífur ekki, eldar ekki, býr ekki til eigin samlokur, hellir varla upp á eigið kaffi, en hann er samt lykilmaðurinn í uppeldi barnanna, sá sem hefur síðasta orðið. Í einum þættinum bauðst hann til þess að hjálpa til meira á heimilinu en mamman þvertók fyrir það, hún gæti sko alveg séð um 6 manna heimili OG selt múffur(sem hún bakar sjálf heima hjá sér hvað annað). Eftir að hafa þrælað við að halda heimili og bakað nokkra tugi múffa í einhverja daga ákvað hún þó að vera áfram bara húsmóðir.
Í hverjum þætti virðist allt ganga upp að lokum, allir læra sína lexíu svo framvegis(ælaælaæla)
Í þættinum í dag gerðist td. Eftirfarandi :
· Presturinn í fullkomnu líkamlegu formi, fannst hann vera feitur af því hann passaði ekki í gallabuxurnar sínar. Prestfrúin cóaði með greyinu og sagði að hún hefði örugglega haft þær of lengi í þurrkaranum. Og brosti út í annað að kjánaskapnum í manninum. Presturinn áhyggjufulli spurði hana hvort hún hefði bætt á sig síðan þau giftu sig fyrir skriljón árum. Hún, glöð í bragði sagði að kílóin settust öðruvísi utan á hana núna en jú, hún væri nú alveg jafn þung. Löng saga stutt: Presturinn fór að skokka, faldi mat fyrir mömmunni, hún vissi það alltaf enda þekkir hún sinn mann. Hann komst að þeirri niðurstöðu að hann ætti að vera ánægður með sjálfan sig.
· Elsti bróðirinn borgar strák sem systir hans var skotin í , til að fara með hana á stefnumót. Systirin fór á stefnumót, komst að því að deitinu hennar hefði verið mútað, varð brjáluð.
· Sama systirin hótaði vinsælum stelpum til að fá þær til að bjóða yngri systur sinni í náttfatapartí. Yngri systirinn komst að því og varð brjáluð. Nenni hreinlega ekki að tala um boðskapinn sem kom fram í partíinu.
· Allir fyrirgáfu öllum þar sem þeir sáu plankann í eigin auga.
Femistinn ég sit og horfi á þetta stundum, fussa og sveia, óa og æi alveg eins og ég lifandi get. Alltaf með kjánahröll dauðans. Samt horfir maður á þetta án þess að skipta um stöð. Afhverju? Kannski af því öllum virðist líða svo vel, gera allt fullkomlega, hugsa á réttsýnann hátt, vera hin fullkomna manneskja. Kannski af því að ég vildi óska þess að eiga fullt af börnum sem ég el upp á fullkomin hátt.Kannski af því að ég vildi að heimurinn væri algóður. Allir hamingjusamir. Allir bjargast, slæmir hlutir gerast ekki, bara sýnishorn af þeim, sem við lærum af. AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRG!!!!
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég veit ekki hvað er málið með þennan þátt, þegar ég hef einmitt kveikt á sjónvarpinu og hann er í gangi að þá sogast ég algjörlega inn í hann þótt ég sé með kjánahroll dauðans nánast allan tíman! Stunudm koma líka atriði og settningar sem eru óborganlegar og ég veina og veina og veina af hlátri. 7th heaven er málið! ;)
Marta, 25.11.2007 kl. 23:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.