Í tilefni af síðustu færslu og kommentum við hana fannst mér tilvalið að birta hér uppskrift af blóðgraut. Já. hmmm. ehhhh. blóóóóóóððððð..... veit ekki alveg, ég hélt að blóðgrautur væri eiginlega bara blóð með smá hveiti. En hann er víst meira brúnn á litinn og frekar lítið blóð í honum. Kannski, BARA KANNSKI myndi ég smakka hann miðað við þær upplýsingar! En eftirfarandi uppskrift hefur eiginlega of mikið af blóði fyrir minn smekk
Njótið
250 gr. Smörl. (hmmm.....á þetta að vera smjör?)
380 gr. Hveiti
1 3/4 l. Mjólk
3/4 l. Blóð
1 tsk. Salt
Bakað upp með snarpheitri mjólkinni, en köldu blóðinu hrært út í á milli, soðið 10-15 mín. Hrært vel í á meðan. Best er að nota blóð úr ungum kálfi. Borðað með kanil og sykri með rjóma eða rjómablandi. Þetta er mjög gott.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
380 gr. Hveiti
1 3/4 l. Mjólk
3/4 l. Blóð
1 tsk. Salt
Bakað upp með snarpheitri mjólkinni, en köldu blóðinu hrært út í á milli, soðið 10-15 mín. Hrært vel í á meðan. Best er að nota blóð úr ungum kálfi. Borðað með kanil og sykri með rjóma eða rjómablandi. Þetta er mjög gott.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Nóv. 2024
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Aðeins öðruvísi uppskrift en mín. Held að það séu örugglega rúsínur í minni uppskrift. Þetta er svipað og kakósúpa á litinn. Mamma mín sagði alltaf, við þá sem ekki vissu betur, að þetta væri heitur súkkulaðibúðingur.
Gló Magnaða, 13.12.2007 kl. 10:40
Mig langar ennþá minna í þetta heldur en lappirnar.
Magga Kristjáns (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 11:15
Blessuð Harpa
hjá mér er ekki komið haust fyrr en soðin hefur verið blóðgrautur, en mín uppskrift er ekkert í líkingu við það sem þú gefur upp( veit ekki hvar þú hefur grafið þetta upp en þar sem ég er búin að ná að tengja þig við nágrana mína (hjarðadalsbændur) mun ég jafnvel hringja og bjóða þér í blóðgraut í næstu sláturtíð... ég get lofað þér því að þú verður ekki svikin
Jónína Eyja (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 11:26
Harpa það er til bók sem nefnist kvennafræðarinn,
þú færð hana örugglega á bókasafninu, þar getur að lýta
fjöldan allan af gómsætum uppskriftum sem væri dágott að bera á borð fyrir kommentana þína, eins og td. heilastöppu.
Ef þú færð ekki bókina á safninu þá get ég rétt að þér nokkrum safaríkum uppskriftum.
Kveðja frá einni sem bjó á Ísó.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 13.12.2007 kl. 16:05
Auðvitað verður blóðið brúnt þegar það kemst í snertingu við súrefni. Þarna er (eins og allar húsmæður vita..) verið að tala um smjörlíki. Það er gjarna skammstafað "smjörl."
Þetta hlýtur að vera ágætt á bragðið.
Ylfa Mist Helgadóttir, 13.12.2007 kl. 22:25
Girnilegri þegar ég sá hvað ætti að setja út á hann
Núna er vel hugsanlegt að ég
vilji smakka.
Hvernig er þetta eiginlega með þennan púka hann virkar aldrei þegar ég ætla að nota hann
Marsibil G Kristjánsdóttir, 14.12.2007 kl. 01:08
hehehe á ég að senda þér uppskrift af heilastöppu eða heilabollum... það var ALLT nýtt af sauðkindinni, endaþarmur og allt.. nema lungun voru aldrei borðuð. Og hættu svo þessu gikkshátt, forfeður þínir átu þetta með góðri list, af þessu eru borin.
Halla Signý (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.