Síðustu tvær færslur hafa verið afar þjóðlegar að mínu mati. Sviðnar og soðnar kindalappir, blóðgrautur með rjóma, heilastappa og heilabollur eru dæmi um það sem um hefur verið rætt. Bíddu, ég ætla að fara að æla....
Ok komin aftur. jamm, hef átt erfitt með að sofna sökum hugsana um þetta allt saman. Já ég veit, full dramatísk en ég get alveg sagt ykkur það að í vikunni átti ég actually erfitt með að sofna af því að ég var að hugsa um hvernig það væri að borða blóðgraut(áður en ég vissi hvernig hann væri búinn til og hvernig hann væri á litinn). Ég veit, ég er kjúklingur.
Veðrið. Hver hefur ekki talað um veðrið þessa vikuna? Ég hélt að gluggarnir ætluðu að koma inn með körmunum og öllu þarna á fimmtudaginn svo ég flutti mig um herbergi til að geta sofið. Hlynur minn fór í útkall, bjarga lífum og allt það þið vitið, dæla vatni og sonna.
Á föstudeginum(í dag) átti að vera æðislega brjálað veður, við biðum og biðum og biðum og biðum eftir brjálaða veðrinu en það kom eiginlega ekki neitt. Bara rok eiginlega og rigning. Rafmagnið fór jú í klukkutíma í vinnunni í dag en ekkert merkilegra en það. Miðað við spána bjóst ég við að fara fljúgandi heim(og ég er ekki V. Beckham). Pffffft, þetta var og er ekkert veður! Allavega ekki hér.
Veðrið á að vera skárra á morgun, fínt. Við erum nefnilega að fara á jólahlaðborð með Trésmiðjunni(þar sem Hlynur vinnur). Krúsin er staðurinn og er það öruggt að við eigum eftir að skemmta okkur vel með liðinu.
Jæja, hver lumar á uppskrift af heilabollum??
Flokkur: Bloggar | 15.12.2007 | 00:23 (breytt kl. 00:43) | Facebook
Nýjustu færslur
- saaaanilld!
- 60-80 manns á Ísafirði!! Þið getið þrefaldað þann fjölda svo ...
- Flott ræða á mótmælum á Ísafirði í dag
- Sniðgöngum ísraelskar vörur!
- Skipulagsleysi? Fjölskyldudagatalið 2009!!!
- George W. Bush : "It's clearly a budget. It's got a lot of n...
- Passa sig að gleyma ekki að lesa á strimilinn í Bónus, og víð...
- OMG!
- Ritskoðun á www.bb.is?
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Júní 2025
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það verður fjör í kvöld, er Hlynur ekki spenntur að fara á ball með Sixties?
Magga Kristjáns (IP-tala skráð) 15.12.2007 kl. 12:54
Ákvað að kommenta inn á síðuna þína.
fannst þetta vera þú, sú Harpa sem varst að kommenta
á skrifin mín áðan, takk fyrir það.
Kvennafræðarinn er inn á Laugum hjá snúllunum mínum, en ef ég sé ekki uppskrift af heila bollum hjá þér, þá sækji ég bókina. Góða skemmtun í kvöld.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 15.12.2007 kl. 17:07
Hæ elskan. Varð bara að spyrja: eru að meina svona eins og kjötbollur eða svona partýbollu??? :o) Get örugglega reddað þér uppskrift af því síðarnefnda ef þú getur reddað heila. Híhí, gaman að lesa bloggið þitt, hafðu það gott! Knús til Hlyns.
Vigdís (IP-tala skráð) 19.12.2007 kl. 23:06
Fanný , 23.12.2007 kl. 06:01
Harpa mín það er orðið langt síðan ég hef fengið að lesa eitthvað hjá þér,
þú hefur nú eitthvað skemmtilegt að segja un jólamatinn er það ekki?
Til hamingju með hundrað þúsund króna styrkinn
þetta var alveg frábært hjá þeim.
Kærar kveðjur og gleðilegt nýtt ár.
Milla.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 29.12.2007 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.