Ég er ekki að fíla/fýla þetta blogg!

Monsa nappar

Ég get ekki sett inn fleiri en eina mynd með hverri færslu á þessu drasli! Ef ég reyni að setja inn fleiri kemur bara linkur neðst í færsluna "fleiri myndir" ! AAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRRRRG! Lélegt blogg!

 Þetta er myndin sem átti að koma líka:

 


Pabbi og Monsa

Pabbi sæti
  Pabbsi minn á afmæli í dag, dáðadrengurinnJ til hamingju með 59 ára afmælið !!! Við fórum til hans eftir vinnu með smá gjöf, hann var auðvitað að vinna í sundlauginni og hafði komið með gúmmulaðiköku frá Dóru í tilefni dagsins. Við fórum svo aðeins með honum heim að kíkja á nýju höllina sem okkur leist mjög vel á. Það er allt svo nýtt þar inni að það er eins og að koma inn í byggingavöruverslun heheheheh......  Enn og aftur um Monsu.... Hún er búin að sofa í allan(eitt eða tvö N?) dag. Hún getur ekki hoppað neitt svo við verðum að lyfta henni upp ef hún vill koma til okkar. Þá stoppar hún hjá okkur, mjálmar og bíður eftir að við tökum hana upp. Svo er hún lengi að koma sér fyrir því það er greinilega ekki sama hvernig hún liggur, finnur til í löppunum. Oh, hún er svo sææææææææt!  Knús Harpa

Fleiri myndir

MONSA HLÝDDI :)

Monsa er komin heim! kl 07:18 var hringt í heimasímann hjá okkur og Hlynur stökk niður eins og elding. Monsa hafði sem sagt leitað skjóls frá rigningunni inn um gluggann á bakaríinu í nótt og sat þar upp á hillu þegar bakarinn mætti í vinnu. Hann setti hana inn í stigagang hjá okkur og þar sat hún og vældi greyið litla. Við Hlynur féllumst í faðma af gleði og ætluðum varla að tíma að fara í vinnunna. Ég vildi helst bara vera heima hjá henni og knúsa. Hún er eitthvað hölt en hefur líklega bara tognað sagði dýralæknirinn. Hún er soldið lítil í sér enda ekki á hverjum degi sem maður flýgur í bakaríið.

 knús

Harpa, með hjartað heitt af gleðiHlæjandi


MONSA HVAR ERTU!!!!!!!

c_documents_and_settings_hlynur_my_documents_my_pictures_monsa_2005_12_18_img_0366.jpg

 

Monsa okkar er týnd !!!! Við erum búin að rölta um allan bæinn í dag og kvöld með nammipokann hennar, hrista og hrista til að lokka hana fram en hún finnst hvergi. Við gleymdum að loka hurðinni að baðherberginu í nótt og hún fór út um þakgluggann og datt niður af þriðju hæð. Hún hefur líklega farið inn einhversstaðar og er líklega skíthrædd. Við höfum verið með tárin í augunum við söknum hennar svo mikið. Búin að hengja upp auglýsingar í búðum og í götum í kring.

Monsa komdu heim!!!!!!


c_documents_and_settings_hlynur_my_documents_my_pictures_monsa_2005_12_18_img_0366.jpg

Hvað myndir þú gera við tólf milljónir?

Ahhhhh.... tólf milljónir....já takk!

 


mbl.is Einn með allar tölur réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýja bloggið mitt!

Ég hef ákveðið að skipta um bloggsvæði, komin með leið á að geta ALDREI bloggað heima hjá mér!


Um daginn sagðist ég ætla að tala um fyrrverandi nágranna og ef ég man rétt þá minntist ég líka eitthvað á sjálfstyrkingar námskeiðið sem ég er á. Ég get reyndar talað um það í sömu sögunni. Hér kemur það :

Sem sagt, ég fór á fund um daginn hjá sjálfstyrkingar hópnum mínum og aðal umræðuefnið var að þessu sinni "móðirin". Játs. Fyrir mig var mikið að tala um en það sem þið þurfið að vita áður en kemur að punktinum í þessari sögu er að þegar við bjuggum í Stórholtinu hér á Ísafirði(bjuggum þar frá ágúst 2004 til nóv 2005) áttum við alveg hreint yndislega nágranna sem bjuggu við hliðina á okkur. Dúnna og Hjalti. Reyndar bjó Stella dóttir þeirra og Benedikt hennar spúsi á vinstri hönd við okkur ásamt tveimur yndislegum ljóshærðum börnum, öll alveg frábær líka. Alla vega, við bjuggum ekki lengi þarna við hlið Dúnnu og Hjalta áður en þau fluttu niður í bæ og hittum við þau aðeins á göngunum öðru hvoru og þegar ég bankaði til að fá lánað egg eða eitthvað. Til marks um það hvað Dúnna er yndisleg að þá bankaði ég hjá henni eitt kvöldið og bað um að fá lánað hveiti, eða egg, eða eitthvað álíka, og ég fór út með það ásamt krukku af rabbabara sultu sem hún hafði búið til.

Anyway, eftir að þau höfðu flutt og við reyndar líka, hittumst við ekki rosalega oft. Síðast talaði ég við Dúnnu þegar við urðum óvart samferða eftir snjóskafli á leiðinni heim þar sem vetur konungur neyddi alla til þess að ganga í hjólförum. Við spjölluðum saman í hjólförunum upp og niður og inn á milli skaut hún þvi að að hún væri alltaf með eitthvað heima hjá sér sem hún ætlaði að gefa mér. Ég sagði henni að koma við þegar hún vildi, hún fengi kaffi hvenær sem er, með eða án gjafar. Ég sakna þess að vera nágranni hennar.

Svo um daginn þegar við lukum fundinum okkar um móðurina, sem ég átti verulega erfitt með, kom ég heim rétt fyrir miðnætti og á borðinu sá ég rauða rós. Ég að sjálfsögðu hélt að þetta væri frá Hlyni en hann (sem er alltaf að koma mér á óvart þessi elskaJ ) sagði "þetta er reyndar ekki frá mér....."
ég komst að því að þetta var frá Dúnnu. Rós með korti sem stóð á " þakka ánægjuleg kynni" Og fyrir neðan rósina stóð rammi með ljóði eftir Davíð Stefánsson. Og þvílík tilviljun sem innihald þessa ljóðs var!!!!

Því aðeins færð þú heiðrað og metið þína móður,
að minning hennar verði þér alltaf hrein og skír,
og veki hjá þér löngun til að vera öðrum góður
og vaxa inn í himinn - þar sem kærleikurinn býr.


Í gær, loksins, hitti ég hana og þakkaði fyrir mig. Sagði henni hve yndislegt það hefði verið að koma heim og finna þetta. Ótrúleg tilviljun.

 

Síðasta vika leið ansi fljótt. Ég var að leysa af í afgreiðslunni í vikunni og var því með það ásamt mínum venjulegu verkefnum sem voru reyndar óvenju mörg þessa vikuna. Nauðungarsala, ökuskírteini, vegabréf, þinglýsingar, fjárnám og lausafjáruppboð meðal annars. Í gær var minn vinnudagur 12 tímar. Sem var reyndar bara gaman þar sem ég vil hafa brjálað að gera í vinnunni. Mánudagurinn bíður mín reyndar með FJÖLDA verkefna sem hafa setið á hakanum í vikunni. En ég hlakka bara til.

Gott fólk, njótið kvöldsins!

Knúsasta knúsið í heiminum
Harpa

 

 


Fyrsta bloggfærsla

Þessi færsla er búin til af kerfinu þegar notandi er stofnaður. Henni má eyða eða breyta að vild.

« Fyrri síða

Höfundur

Harpa Oddbjörnsdóttir
Harpa Oddbjörnsdóttir

Nóv. 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband